镉0rRHؼBu㬰㬰㰰&A&>@=@::$DATA




Slæmar uppeldisaðferðir hjá vinkonu minni

Björn Harðarson sálfræðingur

Spurning:

Mig langar til að forvitnast því að ég hef áhyggjur af börnum vinkonu minnar og henni sjálfri. Vinkona mín er 21 árs og á tvö börn, 2 ára og 1 árs, hún hefur mjög litla þolinmæði gagnvart börnunum og þá sérstaklega eldra barninu og er með mjög strangar uppeldisaðferðir. Ég hef líka heyrt hana segja við eldra barnið að hún sé "alltaf óþolandi". Lilta barnip fær mikla athygli og oft á tíðum er það sem að er eðlileg hegðun hjá 2 ára barni talið óeðlilegt hjá henni. Ég hef heyrt hana segja "afhverju skiluru þetta ekki?" og "hvenær ætlaru að skilja þetta!?". Ég hef miklar áhyggjur af þroska og andlegri líðan 2 ára barnsins. Einu sinni þegar hún var hjá pabba sínum sat hún og lék sér og sagði í sífellu "X er vond". Ég þori ekki að segja neitt við vinkonu mína þar sem að ég veit að hún tekur gagnrýni eða "að reyna að hjálpa" vel og færi freakr í mikla og langvarandi fýlu út í mig. Mig langar mikið til að vita hvort að það er eitthvað sem að ég get gert eða ætti að gera? Með fyrirfram þökk

Svar:

Ég ætla að byrja á að hrósa þér fyrir að þú skulir velta því fyrir þér leita lausna. Allt of oft lítur fólk undan þegar það sér börn í kringum sig, sem líður illa og búa við slæm uppeldisskilyrði. Því miður er þetta á sama tíma mjög erfið aðstaða að vera í og oft erfitt að finna út hvað best sé að gera. Best væri að hægt væri að ræða við hana og reyna fá hana til að átta sig á að hún og börnin þurfi á aðstoð að halda. Það væri reynandi að nota samúð í samskiptunum þegar þetta er borið á borð, td með því að segja. ”Þú ert ótrúlega dugleg að ala upp börnin, aðeins 21 árs, og einnig í fullri vinnu. Verður þú ekki oft þreytt og pirruð og finnst þú þurfa á einhverri hjálp að halda” (Þetta er aðeins dæmi og ekki víst að það eigi við hana). Er ekki aðrir í kringum hana, sem hægt væri að ræða áhyggjurnar við, pabbinn eða Ömmurnar og Afarnir, sem gætu kannski gripið inn í. Ef börnin eru á barnaheimili er möguleiki á að fá ráðgjöf og stuðning frá sálfræðingum Dagvist barna, sú beiðni verður hinsvegar að koma frá forráðamanni barnanna. Þetta eru alltaf erfið mál, því að foreldrar sem eiga í erfiðleikum með að ala börnin sín upp, bregðast oft illa við vinsamlegum ábendingum. Við verðum hinsvegar alltaf að reyna að gera það sem við getum fyrir börnin, það á sérstaklega við ef um vanrækslu eða einhverskonar misnotkun (kynferðisleg, líkamleg, andleg) á sér stað, þá er okkur skylt, samkvæmt barnaverndarlögum, að tilynna grun okkar til yfirvalda eða Félagsþjónustunar.

Gangi þér vel.

Björn Harðarson

sálfræðingur


Greinin birtist í samvinnu við persona.is

Greinasafn

MEDFERD.COM

2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com