Sálfræðingarnir Björn harðarson sálfræðingur og Eygló Guðmundsdóttir.  Upplýsingar um meðfðer viðtöl og ráðgjöf fyrir alar gerðir  vandamála



Ég er ung ein kona með 2 börn og finnst ég vera ómöguleg í samskiptum við annað fólk og fjölskyldu mína.

Spurning:

Ég er ung ein kona með 2 börn og finnst ég vera ómöguleg í samskiptum við annað fólk og fjölskyldu mína. Ég er rosalega tortryggin og finnst alltaf eins og allir séu að gera mér eitthvað, tala illa um mig osfrv. Ég var ekki svona en þetta hefur orðið meira áberandi upp á síðkastið.

Svar:

Kæra “unga kona ein með 2 börn” Tortryggni getur verið mjög erfið tilfinning, hún einangrar okkur frá öðru fólk og henni fylgir oft margskonar vanlíðan. Einangrunin gerist bæði á þann hátt að vegna tortryggninnar fjarlægjumst við þá sem okkur þykir vænt um, og hún (tortryggnin)kemur einnig í veg fyrir að við kynnumst nýju fólki. Þetta hefur síðan einmitt þau áhrif sem þú virðist vera að upplifa, að lenda upp á kant í samskiptum við aðra. Finnast t.d. fólk vera stöðugt að gagnrýna þig og ráðast á þig. Það sem oft einkennir fólk, þar sem tortryggni er vandamál, er að það sér ekki vandann hjá sjálfu sér, heldur finnst því að vandinn liggi hjá öllum öðrum í kringum það. Ég nefni þetta því lykilatriði í árangri meðferðar, er að geta séð og viðurkennt vandann hjá sjálfum sér. Þú virðist nefnilega hafa töluvert mikið innsæi um að þú eigir við þennan vanda að stríða og um áhrif þess á samskipti þín við fólk í kringum þig. Annars hefðir þú heldur ekki ritað þetta bréf. Ég vil þessvegna endilega hvetja þig til að leita þér sálfræðiaðstoðar eða geðlæknisaðstoðar og tel ég að innsæi þitt og áhugi þinn til að gera eitthvað í málinu, geri það að verkum að þú munir ná árangri í að minnka tortryggni þína, bæta samskipti og auka sjálfstraust þitt. Þú hefur þegar tekið fyrsta skrefið með því að viðurkenna vandann og senda þessa fyrirspurn.

Gangi þér vel.

Björn Harðarson

Sálfræðingur


Greinin birtist í samvinnu við persona.is

Greinasafn

MEDFERD.COM

2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com