h="150" border="0">



Vinnufélagi talar um sjálfsvíg

arny spurði:

Sæll Björn. Þannig er að ég hef áhyggjur af (vinnu)félaga mínum. Hann hefur undanfarna mánuði verið að breitast, og ég er hrædd um að hann þjáist af þunglyndi. Hann hefur verið með mikklar skapsveiflur undanfarna mánuði (fer mjög langt niður) og nú er hann farinn að tala um að fremja sjálfsmorð ,,þó í gríni.... en ég er hrædd um að það risti ekki djúft (grínið) Spurningin er ; Er eitthvað sem ég get gert og þá hvað? með þökk ein áhyggjufull.

Kæra áhyggjufull

Ég vil byrja með að hrósa þér fyrir að að sýna vinnufélaga þínum þessa umhyggju og leita ráða hans vegna. Ég vil benda á að okkur ber alltaf að taka sjálfsvígstal alvarlega þó svo að það sé sett fram sem grín. Tal um sjálfsvíg getur aldrei verið grín og ber alltaf að taka alvarlega. Ef ekkert býr að baki tali hans þá verður hann að gera sér grein fyrir því að sjálfsvígstal gerir fólk í kringum hann hrætt. Ef hann hinsvegar hefur íhugað sjálfsvíg, sem mér finnst líklegt mið" valign="bottom" bgcolor="white">