andamál með skapið
Spurning:
Kæri Björn, ég er með vanda að stríða. Ég hef verið soldið brjálaður krakki og það má ekki blása á mig þá var ég brjáluð og er ennþá svona. Það má ekki segja neitt vitlaust eða gera eitthvað sem mér mislíkar þá verð ég brjáluð. Ég verð reið af ástæðulausu og gegn vilja mínum. Þetta er ekekrt eðlilegt hve brjáluð ég verð ef einhver t.d kallar mig "x" ég verð brjáluð í næstu 2 tímanna eftir á. Ég hélt að ég væri skapstór en kærasti er ofvirkur og hann var svona (bara verri) og nú vill ég spyrja þig. Er ég ofvirk og ef ég er það hvað get ég gert?
Svar:
Það er ekki hægt að fullyrða neitt um hvort þú sért ofvirk eða ekki með stuttri lýsingu á þínu vandamáli. Þó er hægt að segja að sú hegðun sem þú lýsir, að vera fljótur að reiðast og með litla þolinmæði, einkennir oft þá sem greinast ofvirkir. Hinsvegar er um mörg önnur einkenni að ræða, td. að eiga erfitt með að vera kyrr, eiga erfitt með að einbeita sér, svo eitthvað sé nefnt. Það sem þú nefnir getur líka einkennt þá sem eiga við reiðivandamál að stríða, en þeir einstaklingar eru ekkert endilega ofvirkir. Fólk, sem elst upp í umhverfi sem einkennist af neikvæðri spennu og vandamálum, getur einnig átt við samskonar vandamál að stríða. Þú gætir til dæmis byrjað á að lesa þér til um ofvirkni á persona.is, sem þú finnur undir Börn og unglingar, þar sem þú smellir á hegðunarvandamál, til þess að fræðast betur um ofvirkni og einkenni ofvirkni. Hinsvegar tel ég að aðalmálið sé ekki endilega að komast að því hvort þú sért ofvirk eða ekki. Vandamálið er að þú ”reiðist að ástæðulausu”, reiðist þegar þú vilt ekki reiðast, og þar af leiðandi missir þú stjórn á sjálfri þér. Þú ert ósátt við þetta og ættir því að leita þér aðstoðar. Þú gætir td. fengið aðstoð með reiðina þína, þar sem þér er kennt hvernig þú átt að vinna úr henni og læra að stjórna henni, með aðstoð sálfræðings. Það skiptir kannski ekki öllu hvað við köllum vandamálin okkar, bara að við leitum okkur leiða til að leysa þau og vinna bug á þeim.
Gangi þér vel.
Björn Harðarson
sálfræðingur
|
|
MEDFERD.COM
2001 Allur réttur áskilin
medferd@medferd.com
|