Ég er haldin(n) miklum prófkvíða og þunglyndi
Björn Harðarson Sálfræðingur
Spurning:
Ég er haldin(n) mjög miklum prófkvíða! Tökum stærðfræði sem dæmi: ég get fengið allt frá 8-10 í prófum í skólanum, í litlum stofum með kannski bara 16 nemendum og ekki alveg dauðaþögn. Í prófum í sal stressast ég mjög mikið og næ kannski mestalagi 7-7,5. Hvað get ég gert? Svo er það þannig að ég er þunglynd og ég hef reynt að fremja sjálfsmorð. Ég get ekki talað við neinn um þetta og forledrar mínir forðast að tala um þetta og segja ég eigi bara að hætta á pillunni og kenna henni um allt. Sem er mjög ósatt. Með von um svar.
Svar:
Kæri spyrjandi. Í bréfi þínu fjallar þú um tvö vandamál, annars vegar hugsanlegan prófkvíða og hinsvegar þunglyndi. Ef ég tek fyrst fyrir prófkvíðann, þá virðist þú samt vera að fá góðar einkunnir í stórum sal, bara ekki eins góðar. Það er þó ekki þar með sagt að þú sért ekki haldinn neinum prófkvíða. Segir okkur kannski frekar að þú gerir miklar kröfur til sjálfs þíns, sem getur verið hluti af vandanum með prófkvíðann. Þú gætir til dæmis reynt að læra einhverja slökunaraðferð. Það getur tekið smá tíma að læra slökun, en hún getur verið þér mjög nytsamlegt tæki þegar þú ferð í próf. Einnig þyrftirðu að skoða svolítið hvað það er við að fara í próf í stórum sal, sem veldur þér kvíða. Hverjar eru td. hugsanir þínar þegar þú ferð í próf í stórum sal. Það eru nefnilega fyrst og fremst hugsanir þínar sem hafa áhrif á hversu mikill kvíðinn verður, eru td. fleiri hugsanir um að þú fallir eða standir þig ekki nógu vel, eða að þú kunnir ekki efnið nægilega vel, þegar þú tekur próf í stórum sal en í skólanum. Ég veit ekki hvort það er námsráðgjafi eða skólasálfræðingur í skólanum hjá þér, en þeir geta í sumum tilfellum aðstoðað fólk sem haldið er prófkvíða. Sá aðili gæti kannski líka verið þér stuðningur með þunglyndi þitt.
Þá erum við komin yfir í að ræða um þunglyndið, sem mér finnst vera miklu meiri vandi og alvarlegra, sérstaklega í ljósi þess að þú hefur reynt sjálfsvíg. Þú segir að þetta sé ekki pillan, og því velti ég því fyrir mér hvort þú vitir hver ástæðan sé. Ef þú ert meðvituð um ástæðuna er það sennilega það sem þú þyrftir að vinna með. Ef það er í einhverjum tengslum við þær aðstæður sem þú ert í, þá þarf að reyna að laga þær aðstæður, og ef það eru einhverjar slæmar minningar þarf að reyna að leysa úr þeim. Þessvegna er mjög mikilvægt að geta rætt vandamálið við einhvern sem sýnir þér skilning og þér finnst þú geta treyst. Þar sem þú segir að foreldrar þínir geri það ekki, datt mér í hug námsráðgjafann eða skólasálfræðing, eins og ég nefndi áðan, einnig kannski skólahjúkrunarfræðingur, góður vinur, eða kannski annað skyldmenni en foreldrar þínir, sem þú telur þig geta treyst og talað við. Því það er alltaf erfitt að sitja með vanlíðan ein og finnast að engin skilji mann.
Gangi þér vel.
Björn Harðarson
Sálfræðingur
|
|
MEDFERD.COM
2001 Allur réttur áskilin
medferd@medferd.com
|