Ömurlegt upphaf í menntaskóla
hrafnildur spurði:
ég er byrjuð í menntaskóla og ég er búin að þola einn ömurlegann vetur... krakkar úr minni heimabyggð virðast gera hvað sem er til að láta mann líða illa! ég hélt að þetta fólk væri búið að þroskast og læra að þeir eru ekki meiri en annað fólk... en þau láta alltaf eins og þeir séu allt og skilja mann útundan frá öllum... ég verð alltaf svo pirruð þegar ég sé þau og verð svo reið!! ég veit ekki hvað ég á að gera til að láta þetta ekki fara í taugarnar á mér!!! ég er ekki þannig manneskja sem á auðvelt með að kynnast fólki.. ég er ekki þessi "hressa" týpa sem getur aldrei verið kjurr..... með fyrirframþökk Ein Pirrrruð
Kæra Pirruð
Menntaskólaárin er oft einn skemmtilegasti tími í lífi okkar og þessvegna er leiðinlegt að heyra að þetta hafi verið ömurlegur vetur framan af. Það getur verið erfitt að taka ákvörðun um hvort þú eigir að hætta tala við fólkið úr þinni heimabyggð eða ekki. Möguleikarnir sem þú hefur er að þú reynir að ræða við þau um hvernig þér líður og hvernig þér finnst þau koma fram við þig. Þú gætir annaðhvort rætt við þau í hóp eða reynt að tala við einhvern sem þú heldur að væri líkleg(ur) til að hlusta á þig, skilja þig og hafa áhrif á hina. Vonandi eru þau þroskaðri en þau virðast vera og breyta hegðun sinni þegar þau heyra hversu illa þér hefur liðið.
Annar möguleiki væri sá að hreinlega minnka samskiptin við þetta fólk og segja sem svo að þessir einstaklingar skipti ekki svo miklu máli að þú ætlir ekki að láta þau stýra líða þinni með því að láta hegðun þeirra hafa svona mikil áhrif á þig,og reyna að einbeita þér að öðrum vinum. Þó svo að þú nefnir að þú eigir í erfiðleikum með að kynnast fólki gerist það oft sjálfkrafa að maður kynnist fólki á fyrsta árinu í menntaskóla. Í menntaskóla eignast margir vini sem fylgja þeim út lífið.
Ég hef trú á því að hvaða leið sem þú velur, þá mun þér fara að líða betur í skólanum eftir áramót. Nú er jólafrí og um að gera að njóta jólanna og koma bjartsýn í skólann eftir jól.
Gangi þér vel
Björn Harðarson
Sálfræðingur
Greinin birtist í samvinnu við heilsuvef Lyfju Vísir.is
|
MEDFERD.COM
2001 Allur réttur áskilin
medferd@medferd.com
|