Sálfræðingarnir Björn harðarson sálfræðingur og Eygló Guðmundsdóttir.  Upplýsingar um meðfðer viðtöl og ráðgjöf fyrir alar gerðir  vandamála



Getur ofvirkni orsakast af ofbeldi á meðgöngutímanum?

Björn Harðarson sálfræðingur

Spurning:

Ég var að lesa greinina um ofvirkni og þá aðalega um orsök ofvirkni og þá datt mér í hug að spyrja getur ofvirkni orsakast af því ef móðirin var beitt ofbeldi á meðgöngutímanum?

Svar:

Kæri gestur á persona.is Það er alls ekki hægt að fullyrða um hvort ofbeldi á meðgöngutíma geti verið orsök ofvirkni. Erfitt og flókið getur verið að svara til um um orsök ofvirknis og fræðimenn eru alls ekki sammála sín á milli. Lengi var talið að heilaskaði væri orsök ofvirkni, en rannsóknir hafa einungis getað sýnt fram á að um 5% ofvirkra barna beri einhver merki heilaskaða. Hins vegar er ein mest viðurkennda kenningin í dag sú, að orsök ofvirkni megi jafnvel skýra með virkni boðefna í heila. Margir eru á þeirri skoðun að hér sé um arfgengt vandamál að ræða, en þó eru töluvert margir sem aðhyllast þær kenningar að í mörgum tilfellum megi rekja orsökina til vandamála á meðgöngu eða við fæðingu. Vandamálið hinsvegar, með að sýna fram á þessa orsök, er að oft er hægt að nota sömu sannanir til að skýra aðrar kenningar. Sem dæmi er faðir sem beitir móður ofbeldi á meðgöngutímanum. Hér væri hægt að ímynda sér að orsök ofvirkni hjá barninu sé vegna barsmíðanna. En, faðirinn á mögulega sjálfur við mörg vandamál að stríða og er kannski sjálfur ofvirkur, hérna erum við komin með mögulega erðafræðilega skýringu. Að lokum getur verið að faðirinn taki þáatt í uppeldi barnssins og sé því í nánasta umhverfi þess og það getur verið vísun í að umhverfið sé jafnvel orsökin.

Hérna erum við komin með þrjár mögulegar skýringar, sem sýnir aðeins hversu flókið er að spá til um orsök vandans. Við þetta má svo bæta að margir vilja meina að þó við greinum mörg börn með ofvirkni og athyglibrest, sé um margskonar vandamál að ræða sem orsakast á mismunandi ástæðum. Vona að þetta svari að einhverju leyti spurningu þinni

Gangi þér vel.

Björn Harðarson

sálfræðingur


Greinin birtist í samvinnu við persona.is

Greinasafn

MEDFERD.COM

2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com