镉0rRH㳼u㬰㬰㰰&AE& ?@::$DATAl.html">



Mér var nauðgað fyrir 3 árum og mér hefur liðið mjög illa síðan ...

Björn Harðarson Sálfræðingur

Spurning:

Mér var nauðgað fyrir ca. 3 árum og mér hefur liðið mjög illa síðan en engum sagt frá þessu nema vinum og voða lítið talað um þetta en líður mjög illa. Ég vildi spurja hvort ég gæti leitað eitthvert og þá hvert? (Í dag er ég 17 ára) Svar óskast sem fyrst!

Svar:

Kæra 17 ára Þakkað þér fyrir fyrirspurnina. Það er gott hjá þér að vera farin að hugsa um að þú þurfir að vinna úr þessari erfiðu lífsreynslu, sem nauðgun alltaf er. Þar sem þér líður enn mjög illa held ég að þú hefðir mjög gott af því að fá fagaðila til að ræða það sem gerðist og hvernig það hefur haft áhrif á líf þitt og líðan. Stígamót hafa lengi aðstoðað fórnarlömb nauðgana, en það ættu líka að vera fleiri möguleikar. Mér dettur í hug, þar sem þú ert ekki orðin 18 ára, að þá væri möguleiki að það sé þjónusta í boði fyrir þig hjá Barnahúsi. Þeir bjóða upp á meðferð fyrir fórnalömb kynferðisbrota og þú gætir haft samband við þau. Sálfræðingurinn þar heitir Vigdís. Einnig gæti verið gott fyrir þig að leita til sálfræðinga, sem eru með stofu. Fleiri aðilar bjóða upp á aðstoð eftir nauðgun og má þar nefna, auk Stígamóta, Kvennaathvarfið og Rauða Kross húsið, svo eitthvað sé nefnt. Allir þessir aðilar eru bundnir þagnarskyldu. Að lokum vil ég eindregið hvetja þig til að leita þér aðstoðar.

Gangi þér vel.

Björn Harðarson

Sálfræðingur


Greinin birtist í samvinnu við persona.is

Greinasafn

MEDFERD.COM

2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com

MEDFERD.COM

2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com