Sálfræðingarnir Björn harðarson sálfræðingur og Eygló Guðmundsdóttir.  Upplýsingar um meðfðer viðtöl og ráðgjöf fyrir alar gerðir  vandamála



ræðsla um kynferðislega misnotkun fyrir börn

Björn Harðarson Sálfræðingur

Spurning:

Ég er skelfilega hrædd við kynferðislaga misnotkun á börnum sem ég tel vera hreint og beint sálarmorð, langar mig að spyrja hvernig get ég frætt dóttur mína og hvað má hún vera gömul þegar ég fræði hana um þessa hluti, því ég vil alls ekki hræða hana. Takk fyrirfram.

Svar:

Í ljósi þess að aukin umfjöllum hefur átt sér stað um kynferðislegt ofbeldi á börnum, verða margir foreldrar áhyggjufullur eins og þú. Bara það að þú sért á varðbergi fyrir þessu og vilt vernda dóttur þína, ætti að hafa þau áhhrif að þú ert meira vakandi fyrir því hvaða aðstæður gætu verið henni hættulegar. Á sama tíma getur maður ekki ofverndað börnin sín meira en eðlilegt er. Ég myndi vilja benda þér á bók sem tengist þessu efni. Hún heitir “þetta er líkaminn minn”, og fjallar einmitt um þetta sem þú nefndir, að fræða börnin um þessi mál. Dreifa átti bókinni á heilsugæslustöðum og ættirðu að geta fengið upplýsingar um bókina þar eða jafnvel hjá Barnaheill, sem ættu að þekkja málið. Með bókinni er hægt að kenna börnum að þau hafa yfiráð yfir líkamann sínum og tilfinningum. Einnig er þeim kennt að verjast líkamlegri áreitni. Mismunandi skoðanir eru á hvenær á að byrja að fræða börn um þessi mál. Talað er um aldurinn 3-5 ára, og má nefna að bókin sem ég nefndi, átti að dreifa í 3 ½ árs skoðun og ætti það því að vera ágætis aldur. Hinsvegar er aldrei of seint að kenna börnum að passa sig, maður þarf bara alltaf að vara sig á að hræða ekki börnin. Að lokum vil ég óska þér góðs gengis og benda þér á að hugsa líka um sjálfa þig því það getur verið erfitt að hafa svona miklar og stöðugar áhyggjur af börnunum okkar.

Gangi þér vel.

Björn Harðarson

Sálfræðingur


Greinin birtist í samvinnu við persona.is

Greinasafn

MEDFERD.COM

2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com