Sálfræðingarnir Björn harðarson sálfræðingur og Eygló Guðmundsdóttir.  Upplýsingar um meðfðer viðtöl og ráðgjöf fyrir alar gerðir  vandamála



Er ég haldin(n) fælni?

Björn Harðarson sálfræðingur

Spurning:

Getur fælni sprottið af fæðingarþunglyndi? Ég hef átt við nokkurskonar fælni að stríða, ég á erfitt með að vera ein og er sífellt hrædd.Ég veit samt að ég er ekki í neinni hættu þannig lagað.Það er eins og ég hugsi fram fyrir mig og sé komin með "worst case scenario" áður en ég legg af stað. Mér finnst að þetta hafi byrjað þegar ég átti barn fyrir um 4 árum síðan og versnar stöðugt. Er ég haldin fælni eða hvað? Takk fyrir.

Svar:

Kæra “er ég haldin fælni” Það eru dæmi þess að konur, sem hafa átt við fæðingarþunglyndi að stríða, hafi þróað með sér kvíðavandamál eða fælni. Það er þó ekki endilega víst að hér séu um bein tengsl, milli fæðingarþunglyndis og fælnis, að ræða Hinvegar get ég bent þér á að þunglyndi og kvíði eru að mörgu leyti svipaðar tilfinningar, og sem dæmi er mjög algengt að þeir sem þjást af þunglyndi hafi heilmörg einkenni kvíða. Ein ástæðan, sem getur hrundið þessu af stað, getur verið stöðugt álag sem oft leiðir til kvíða. Þú ættir að skoða nánar hvort það sé mikil streita í lífi þínu og hvort þú getur dregið úr þeirri spennu. Einnig getur verið gott að draga úr kaffineyslu og skoða mataræðið. Þetta getur allt hjálpað til við að draga úr kvíðatilfinningu. Þú nefnir að kvíði þinn einkennist af því að þú átt erfitt með að vera ein. Það gæti líka stafað af einhverri erfiðri reynslu, þar sem þú varst ein og ósjálfbjarga og upplifðir þig í hættu. Þessi einkenni, sem þú nefnir, eru frekar algeng einkenni hjá fólki sem glímir við kvíða eða fælni. Hugsanir þínar, um að það versta muni gerast, auka kvíðann og aukinn kvíði gerir þig hræddari um að eitthvað slæmt gerist. Í svona aðstæðum er mikilvægt að minna sig á það sem þú segir ”ég veit samt að ég er ekki í neinni hættu” til að magna ekki upp slæmar hugsanir og einbeita sér að því að anda eðlilega, til að hröð öndun magni ekki upp kvíðatilfinninguna. Það sem ég get sagt þér er, að þú ert með greinileg merki kvíða/fælni, óháð hversvegna það byrjaði og ættir að íhuga að fá aðstoð sálfræðings til að vinna með þennan kvíða.

Gangi þér vel.

Björn Harðarson

sálfræðingur


Greinin birtist í samvinnu við persona.is

Greinasafn


MEDFERD.COM

2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com