ft í námserfiðleikum og þurfa því sérstaka aðstoð eða að námsefnið sé lagað að þörfum þeirra og getu. Til að hvetja þessi börn áfram, til að vinna í skólanum, er td. gott að hrósa þeim um leið og þau hafa gert eitthvað ákveðið verkefni. Í skólaumhverfinu hefur reynst vel að leyfa börnum með athyglisbrest að sitja fremst svo að kennarinn hafi tækifæri á að hrósa og “skamma” um leið og hlutirnir gerast. Það er töluvert um að börnum með athyglisbrest séu gefin lyf, en mismunandi skoðanir eru á notkun þessara lyfja fyrir börn, bæði vegna þeirra aukaverkanna, sem þau geta haft, og einnig hafa þau ekki tilætluð áhrif fyrir öll börn. Það eru til fleiri meðferðarleiðir, sem ættu allavega að vera beitt samhliða lyfjameðferð og jafnvel, í einhverjum tilfellum, án lyfjameðferðar. Þetta eru t.d. foreldraþjálfun, þar sem foreldri/ar er meðal annars kennt atferlisþjálfun. Einnig er mikilvægt að fá kennara og starfsmenn skóla inn í þetta starf. Hvort vandi sonar þíns þroskast af honum eða ekki er erfitt að svara. Það fer mikið eftir því hversu mikill vandinn er og hvernig hann lýsir sér. Tölur um framtíðarvandamál barna með ofvirkni og athyglisbrest (hér er þó átt við ofvirkni, sem fylgifisk athyglisbrests, en ekki misþroska), benda á að ca. 70% þessara barna eiga ennþá í einhverjum þroskavandamálum á unglingsárum og um helmingur á fullorðinsárum. Það sem þó er mikilvægast, er að vera jákvæður um framtíð barnsins en á sama tíma raunsær. Það sem mér finnst mikilvægt að þú gerir, er að tala við þann aðila sem gaf syni þínum þessa greiningu. Fá góðar skýringar á hvað einkennir vanda sonar þíns og hvaða stuðningur og meðferðtilboð eru í fyrir hann, og ykkur sem fjölskylda. Eftir það getur verið mjög gott að verða sér úti um lesefni og fræðast um greininguna og fleira sem því tengist. Vona að þú fáir betri skýringar á greiningunni, sem sonur þinn fékk, og að þið fáið allan þann stuðning sem hann þarf á að halda.

Gangi ykkur vel.

Björn Harðarson

Sálfræðingur


Greinin birtist í samvinnu við persona.is

Greinasafn

MEDFERD.COM

2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com