Hvað er hægt að gera við þunglyndi og kvíða?
xit spurði:
Mig langar að vita hvort ekki sé einhvað hægt að gera við þunglyndi og kvíða ? Ég er þunglynd og með mikinn kvíða á hverjum degi ég er búin að vera á lyfjum meira og minna í 8 ár en það virkar ekki. Ástandið er oft mjög slæmt hjá mér ég er t.d. nánast óvirk á heimilinu og get orðið með naumindum farið ein út í búð, ég þori ekki að hitta fólk, ég loka mig inni og tala helst ekki við neinn nema nánustu fjölskyldu og varla það, ástandið er stundum það slæmt að mér finnst ég vera að kafna mér sortnar fyrir augum og næ varla andanum að ég tali ekki um hausverkinn sem fylgir þessu og vandamál með meltingu. Ég hef prófað slökun og allskonar lyf en það virðist ekkert virka. Er einhvað sem ég get gert til að mér fari kannski að líða aðeins betur ???
Kæra þunglynd og kvíðin
Ég get fulvissað þig um að það er alltaf hægt að gera eitthvað við þunglyndi og kvíða. Ég heyri á þér að þetta vandamál er búið að fylgja þér lengi og án þess að lyf hafi unnið bug á vanlíðan þinni. Samkvæmt lýsingu þinni þá virðist þér líða virkilega illa og þetta ástand virðist einnig hamla þér mjög mikið. Þar af leiðandi er það enn mikilvægara fyrir þig að trúa því að hægt er að láta sér líða betur. Þrátt fyrir að hin nýju þunglyndislyf hafa verið að gefa mjög góðan árangur þá er lyfjagjöf alls ekki eina meðferðin sem virkar. Sálfræðileg meðferð er einnig góð til að vinna bug á kvíða og þunglyndi og sem dæmi hafa rannsóknir sýnt að hugræn atferlismeðferð virkar jafn vel og oft betur en lyfjameðferðin. Hinsvegar virðist árangurinn oft vera bestur þegar þetta tvennt er notað saman. Lyfin ná að hífa fólk upp úr versta svartnættinu og hugræna atferlismeðferðin gefur fólki tæki til að vinna sjálft með vanlíðan til lengri tíma. Með hugrænni atferlismeðferð er fólki kennt að þekkja tengsl hugsanna, tilfinninga og hegðunar og hvernig það getur unnið kerfisbundið í að koma sér út úr vítahring sem einkenni kvíða og þunglyndi og þar með byggja upp betri líðan.
Gangi þér vel
Björn Harðarson
Sálfræðingur
Greinin birtist í samvinnu við heilsuvef Lyfju á Vísir.is
|
|
|