Hvernig á að umgangast manneskju með þunglyndi og kvíða?
Björn Harðarson Sálfræðingur
Spurning:
Hvernig á að umgangast manneskju með þunglyndi og kvíða? Á að sýna sérstaka varkárni? Það virðist sem að það þurfi mjög lítið til að koma viðkomandi úr jafnvægi.
Svar:
Kæri “sendandi” Þeir sem eru þunglyndir og kvíðnir eru oft mjög viðkvæmir og litlir hlutir geta komið þeim úr jafnvægi. Mín ráðlegging er þó að það þurfi ekki neina sértaka varkárni í kringum þá, nema vandamálið sé þeim mun meira og möguleg sjálfsvígshætta. Frekar að temja sér nærgætni og samhyggð. Það að við sýnum að við finnum til með þeim og setjum okkur í spor þeirra. Á sama tíma er mikilvægt að vera hreinskilinn og opinskár og geta rætt vandamálið. Oft er hætta á að einstaklingur misskilji það sem sagt er á neikvæðan hátt, og þessvegna er mikilvægt að vera skýr í tali og útskýra vel það sem maður er að segja. Oft er það þannig að fólk veit ekki hvernig það á að umgangast þann þunglynda og kvíðna og forðast því umræðuna um vandamálin og vanlíðunina. Þetta getur virkað mjög óþægilegt fyrir einstaklinginn, sem jafnvel þráir að ræða um líðan sína, en getur ekki byrjað umræðuna, finnst jafnvel hann ekki mega trufla aðra með sínum málum. Þessvegna er mjög mikilvægt að forðast ekki einstaklinginn, forðast ekki umræðuna, koma fram með almennri virðingu, vera skýr og opinskár, og umfram allt að sýna samhyggð.
Gangi þér vel.
Björn Harðarson
Sálfræðingur