Björn Harðarson

Reynsla af meðferð










Ég er áhyggjfull

Björn Harðarson Sálfræðingur

Spurning:

Ég er ung, áhyggjufull kona. Áhyggjur mínar liggja yfirleitt þungt á mér og þeim fylgir rembingshnútur í maganum. Ég get haft áhyggjur af flestu,en mestar eru þær af ástarsambandi mínu. Ég held ég hefði gott af sálfræðimeðferð, en hræðist að það fréttist og einnig kostnaðinn. Hvert get ég farið, ég treysti svo fáum?

Svar:

Kæra “ung, áhyggjufull kona” Eðlilega er mjög erfitt að vera með áhyggjur af flestu og sérstaklega stöðugt eins og þú nefnir. Það virkar á mig sem stöðugur kvíði hrjái þig. Það er hægt að hjálpa fólki til að læra ákveðna tækni til að losna við þennan kvíða, og tekur það tiltölulega stuttan tíma í sálfræðilegri meðferð og því ætti sálfræðileg meðferð að henta þér vel. Ekki veit ég hvort áhyggjur þínar á ástarambandi þínu eru aðallega afleiðingar þessa kvíðavandamáls eða raunverulegt áhyggjuefni. Ef það er raunverulegt áhyggjuefni þyrftirðu að taka á því. Þú ættir ekki að hafa áhyggjur af því að það fréttist ef þú færir til sálfræðings. Á síðustu árum hafa fordómar, gagnvart því fólki sem leitar til sálfræðings, minnkað ótrulega mikið, og er fólk farið að átta sig á því að margir fara til sálfræðings vegna margvíslegra vandamála án þess að vera haldið alvarlegum geðsjúkdómum. Þú ættir frekar að hugsa stolt um það að þú viljir styrkja andlega heilsu þína og segja það við sjálfa þig. Kostnaðurinn er skiljanlega áhyggjuefni því það kostar frá 3500-6000 krónur tíminn hjá sálfræðingi á stofu. Þó svo að það sé búið að úrskurða að það sé brot á samkeppnislögum að Tryggingarstofnun niðurgreiði aðeins greiðslur til geðlækna, þá er erfitt að segja til um hvenær breyting verður á þessu. Þú hefur auðvitað möguleika á að þiggja lyf við kvíða þínum, en ef eingöngu eru gefin lyf án þess að veit sé nokkur önnur meðferð er hætta á að kvíðinn blossi aftur upp eftir að þú hættir á lyfjunum. Þú getur auðvitað gert ýmislegt sjálf, eins og að læra og æfa slökun og gera lítið úr áhyggjum þínum með sjálfstali, þ.e. ef um óraunverulegar áhyggjur er að ræða. Það er hinsvegar oft gott að fá aðstoð við að læra þetta og koma sér af stað. Ég vil benda þér á að allir fagaðilar eru bundnir þagnarskyldu að því leytinu til ætti þér að vera óhætt að treysta þeim aðila sem þú leitar til. Margir sálfræðingar vinna með vandamál eins og þú átt við að stríða og þú gætir til dæmis skoðað upplýsingar um þá sálfræðinga sem skráðir eru hjá persona.is. Þar kemur fram hvort þeir séu með stofu og hvar.

Gangi þér vel.

Björn Harðarson

Sálfræðingur





Greinin birtist í samvinnu við persona.is










MEDFERD.COM
2001 Allur réttur áskilin

medferd@medferd.com