/镉0rRH@ٽ@&@9%0::$DATAeft" valign="top">

Parental control software Responsible Surfing


www.netnotkun.is

Gleðilegt Jól og farsælt komandi ár

Athugið að til að einfalda skrif höfum við flutt myndir og dagbók á:

www.benjonikla.blog.is

Hæ, ég heiti Benjamín Nökkvi Björnsson og ég fæddist 28/7'03. Ég var svona passlega stór 3850 grömm og 52,5 cm langur. Ljósmóðurinni minni fannst ég rosalega karlmannlegur og með stórar og flottar hendur, mömmu fannst ég mjög líkur Nikulási, stórabróður mínum, og pabba fannst ég bara ótrúlega flottur. Ég dafnaði mjög vel og fannst brjóstið langbest, en þáði þó pela hjá pabba stöku sinnum þegar mamma þurfti að skreppa eitthvað og ég varð svangur.

Þegar ég var 9 vikna og 6 daga greindist ég með bráðahvítblæði og ég hef verið inniliggjandi á Barnaspítala Hringsins síðan. Þetta var allt svolítið skrítið því ég hafði aldrei verið neitt veikur og var hreystin uppmáluð, en daginn áður en ég greindist fannst mömmu ég svolítið fölur og hvítan í augunum mínum var pínu gul. Mamma og amma á Ísó fóru síðan með mig daginn eftir, laugardaginn 4 október, til að láta kíkja á mig og þar sást þessi sjúkdómur í blóðinu mínu.

Hvítblæði er mjög hættulegur sjúkdómur, sérstaklega þegar maður er svona lítill eins og ég því lyfin sem ég þarf að fá, til að hægt sé að drepa "vondu" frumurnar, drepa líka "góðu" frumurnar mínar og því verður ónæmiskerfi mitt "veikt" og gerir mig viðkvæman fyrir sýkingum og svoleiðis. Þessvegna þarf ég stundum að fara í einangrun og þá þarf fólk að vera í svona gulum sloppum og er alltaf að spritta á sér hendurnar til þess að bera ekki neina sýkla til mín, þannig að ég verði ekki veikur og kroppurinn minn ráði ekki við það. Ég er samt ótrúlega "seigur" strákur, það segir allavega mamma, og er ansi duglegur að blása bara á smá hita, kvef og svoleiðis.

Nú er ég búinn að vera í lyfjameðferð síðan 6 október og það gengur hægt og sígandi í rétta átt. Þetta er löng og ströng meðferð fyrir mig, en ég þarf að vera í lyfjameðferð í allavega tvö ár, og stundum líður mér rosalega illa af lyfjunum og skæli þá svolítið en allir hér eru svo góðir við mig að ég tek yfirleitt fljótt gleði mína á ný. Hér á Barnaspítalanum er nefnilega alveg ROOOOSALEGA gott fólk sem passar ofboðslega vel upp á mig, ég hef meira að segja eignast nokkrar "auka" ömmur, sem vita sko alveg hvernig á að knúsa og krúsa svona strák eins og mig, ég hef þær sko svolítið í vasanum (hí, hí).

Bless, kex, kornfleks (þetta finnst Nikulási bróður og Hrafnhildi systur minni ótrúlega fyndið að segja).

Benjamín Nökkvi Ofurtöffari.

Eftirmáli

Benjamín Nökkvi byrjaði í lyfjameðferð 6 okt. 2003 og fór síðan út til Svíþjóðar 28. febrúar 2004 í mergskipti. Merginn fékk hann frá bróður sínum Nikulási sem er 6 ára og eftir 4 mánaða dvöl í Svíþjóð leit allt mjög vel út og Benjamín og móðir hans fengu loks að fara aftur heim til Íslands eftir langa dvöl frá aðstandendum sínum. Eftir að hafa verið í reglubundnu eftirliti á Barnaspítla Hringsins, þar sem allt leit mjög vel út, gat Benjamín farið að vera aðeins meira meðal fólks og var farinn að lifa að mörgu leyti eins og venjulegt barn. Í vor eða haust átti hann svo að fá að byrja í leikskóla ef allt héldi áfram að líta vel út. En því miður fékk Benjamín aðeins að njóta þessa að lifa eins og nokkuð venjulegt barn í 5 mánuði. Rétt fyrir páskana 2005 fóru Eygló (mamman) og Benjamín aftur til Svíþjóðar í ársskoðun, og komust þá að því, sér til skelfingar, að hvítblæðið var komið aftur og hann byrjaði um leið aftur í lyfjameðferð. Síðan þá er hann búinn að búa inn á spítala með móður sinni og ef allt gengur vel þá fer fjölskyldan aftur til Svíþjóðar í endaðan maí í önnur mergskipti.